Á föstudaginn kom í ljós þegar ég drullaðist loksins til læknis eftir slæman hósta í rúmlega viku, að ég er með bronkítís sem er ekkert hættulegt en er samt næsta stig við lungnabólgu (litlu pípurnar sem liggja inn í lungun bólgna). Ég var alveg róleg en allir fengu kast því að hérna deyr fólk úr þessu og þau segja að ég sé sérstaklega viðkvæm fyrir "ókunnugum gerlum" svo mér var skipað að haldast innanvið í marga daga, fara á sterk sýklalyf og þar að auki fara í meðferð í einhverju skrítnu tæki sem öll heimili hér eiga sem heitir Nebulizador. Það er einhver mótór, heitt vatn, lyf, pípa og gufa sem ég á að anda í gegnum í 10 mín - 5x á dag og gefur frá sér mjög skrítin hljóð!
Systir mín hún Florencia var að kaupa sér nýjan leðurkjól og fór út í honum á föstudaginn í sjúkt partý... og ég var heimasett vegna helvítis hóstans... en ég allavega tók myndir henni þegar hún og Julieta voru að gera sig tilbúnar og dó úr afbrýðissemi yfir bæði kjólnum og líkamanum! Svona eru þessar argentínsku....
bekkjarfélagar
Við Lisanne erum duglegar í ljósmyndun í háskólanum og mætum alltaf og erum orðnar hluti af hópnum. Og það er líka sjúklega skemmtilegt. Í Práctica (verklegu) um daginn fórum við að litlu vatni fyrir neðan háskólann og til að gera verkefni og hérna eru nokkrar myndir sem við tókum auka.
emi, martín, lisanne, marcos
emilia í miðbænum
Síðustu helgi fórum við háskólakórinn í æfingabúðir upp í fjöllinn í Villa General Belgrano (bærinn sem ég fór á Októberfest afþví þetta er nýlenda nasista frá Þýskalandi). Við gistum á gulu hosteli lengst inní skógi með sunglaug, ótrúlegum heimgerðum mat og dýrum. Með okkur í för var stjórnandi frá Venezúela að nafni Dina og mesta Díva sem ég hef hitt. Kórinn er nefnilega að fara til Venezúela á næsta ári. Ég lærði helling um þetta land og tónlistarmenninguna þar sem er víst rosaleg og meirihluti krakka læra á hljóðfæri og ég veit ekki hvað. Fyrir utan að syngja fórum við í bæjarferð og djömmuðum á hostelinu og útí skóginum um nóttina... fórum í ratleiki og sumir fundust daginn eftir sofandi í skóginum. Allir eignuðust svona "ósýnilegan vin" og minn var kosinn besti vinurinn því hann gaf mér svona 5 geðveik ljós, súkkulaði, smíðaði pakka og setti inn í hann pennaveski (sem ég hafði verið að skoða með vinum fyrr um daginn).. og svo á þriðjudaginn þegar við héldum tónleika með Dinu kom hann til mín og gaf mér mjög sætan klút í fánalitum Argentínu. Þá var það hann Martín vinur minn haha. Og ég sem gaf mínum vini bara eitt súkkulaði með dulce de leche en ok ni importa. Í kórnum er svo líka ein af bestu vinkonum argentínskum sem ég hef eignast, hún Emilia, sem er elskar þungarokkstónlist og þá sérstaklega frá Finnlandi og Nightwish, er 25 ára og útskrifuð úr heimspeki en draumurinn er að verða óperusöngkona í Buenos Aires. Hún er guðdómlega falleg, alveg snarbrjáluð og sérstök. En alveg ótrúlegt hvað við eigum vel saman. Næsta laugardag er svo planað að fara með nokkrum strákum og henni á sveitabæ til að taka eitt asado og svo eftir á ætla ég að gista hjá Emi (kærastinn verður rekinn til foreldra sinna) og allan sunnudaginn ætlum við að gera helling af hlutum... horfa á The Black Swan, hún kenna mér að gera Smokey Eyes, kenni henni að meta íslenska tónlist (horfa á Rokk í Reykjavík), taka einhverja ólífumeðferð á hárinu mínu í von um að gera það hnútalaust, borða einhver sérstök ravioli a la Emi og milljón aðra hluti... ok hætt að skrifa rugl. Tvær myndir heima hjá Sophiu um daginn.
By the way, ég og Lisanne rústuðum að syngja þjóðsönginn á útskriftunum í háskólanum og vorum svo sýndar á borgarsjónvarpsstöðinni um kvöldið!! TVISVAR!! Ég set inn myndbandið um leið og ég finn það.
Ætla að fá að setja inn tvö myndönd frá Calle 13 grúppan frá Puerto Rico sem ég sá á Shakiru tónleikunum. Þau eru náttla nýjasta hitt Latino Ameríku og algjörlega með mest hlustuðustu hjá mér þessa dagana. Myndböndin þeirra eru líka geðveik. Lögin snúast um óréttlæti og fátækt en samt um von líka. Og systir aðalgaursins sem er líka í bandinu er rosaleg. Mun aldrei gleyma háu, þröngu buxunum sem hún var í á tónleikunum í Córdoba. Fyrsta myndbandið er kúl, umhverfið og húsþökin eru mjög svipuð borginnni minni. Það sjást skór hangandi á rafmagnslínu, í allri Ameríku þýðir það að þar einhversstaðar er hægt að kaupa dóp. Textinn er ótrúlegur, vildi að þið skilduð þetta!
Latino America(laginu beint til Bandaríkjanna) - "Samfélag án fóta en gengur samt. Þú getur ekki keypt rigninguna, þú getur ekki keypt vindinn, þú getur ekki keypt sólina, þú getur ekki keypt litina, þú getur ekki keypt gleðina mína.... við göngum við göngum. Þú getur ekki keypt líf mitt. Lifi America.."
Vá hvað þú ert ógeðslega dugleg að blogga! mér er farið að líða illa yfir bloggleysinu mínu þegar ég heimsæki síðuna þína
ReplyDeleteAnnars er alltaf gaman að lesa bloggin þín :)
Verður að finna myndmandið af ykkur lisanne syngjandi þjóðsönginn!
Látu þér svo batna
abrazo
gunni
Þú ert eins og ég veit ekki hvað með þessa öndunarpípuvél
ReplyDeletehahah fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá þessa mynd var að þú værir með noseinfection og nefið þitt væri grænt! guði sé lof að svo er ekki..
ReplyDeletestutt í þig, takk fyrir að stytta mér stundir með ævintýralegum bloggum og myndum!(á Íslandi er skýjað og vindur en samt smá sól)
luv- krillz