Mig langar að setja inn nokkrar myndir frá háskólanum sem ég geng í.. þær eru ekkert sérstakar enda tók ég þær klukkan 2 um dag þegar flestir eru heima að sofa siestuna..
Universidad Nacional de Rio Cuarto eða UNRC er 20.000 manna háskóli í úthverfum borgarinnar (30 mín í strætó fyrir mig) og hefur mjög stórt svæði bæði fyrir sínar deildir og íbúðir nemenda. Þar er m.a. vatn og skógur og maður er líklega svona 15 mín að labba yfir campus svæðið. Ég er í Ciencias Humana y Artes (mannfræði (félagsfræði) og lista) deildinni og eru myndirnar þaðan. Það er stærsta bókasafn í héraðinu fyrir utan í Córdoba Capital og er bara einn risa risa stór veggur með fullt af stigum og innskotum, ýkt kúl. Málaradeildin er búin að skreyta allsstaðar með teikningum og graffi, pínu eins og í Listaháskólanum. Oft eru líka dans og listasýningar þarna og um alla borgina á vegum nemenda. Um daginn var ljósmyndasýning og kennarinn minn bað um að fá að láta upp eina mynd eftir mig (alltaf svo kúl að sýna útlendinginn) og ég sendi henni tvær myndir sem fylgdu temanu (maðurinn) og hún var svo ánægð eitthvað með þær að hún lét þær báðar.. læt þær fylgja með hérna neðst. Ein er af stelpu sem býr í fátækrahverfunni (villunni) þar sem ég var sjálfboðaliði í og hin af gamla kallinum sem situr úti á tröppunum meðan á siestunni stendur hinum megin við götuna mína. Venjulega er hann með vindil en ekki í þetta skiptið sem ég tók myndina.
Veit ekki hvað fleirra ég get sagt um háskólann. Mér finnst hann allavega mjög kúl. Gaman að fá að prófa að vera í háskóla. Fólkið skiptist alveg í hópa og er þá sérstaklega hópur "latino hippa" sem eru í minni deild flestir, held ég. Félagslífið er alveg topp í háskólanum. Alla fyrsta laugardaga í hverjum mánuði er haldið "Uni-fest" á stóóóóru boliche (skemmtistað) sem er sundlaugarpartý, stórhættulegt en frábær lífsreynsla. Síðan er alltaf eitthvað í gangi allar helgar (og fimmtudaga) fyrir háskólanemendur annað hvort í miðbænum eða bara á campus svæðinu... hefði líka ekkert á móti því að búa þar. Kannski ætti ég bara að koma aftur sem skiptinemi á háskólastigi? neeeeeeeee... held að minn skammtur að vera íbúi í Rio Cuarto sé alveg nóg, frekar að gera eitthvað annað. Markmiðið er samt að koma aftur og búa í Argentínu. Og eins og Ford sagði: Ef þú trúir á það, gerist það. Ef þú trúir ekki á það, gerist það ekki. (var þetta ekki örugglega Ford?)
Allavega, myndir:
bókasafnið
við bjuggum til stuttmynd sem mátti bara innihalda efni úr tímaritum.. mitt þema var Rolling Stone
Lisanne kát á matartorginu sem er venjulega fullt svona 500 manns
göngustígurinn frá strætóskýlinu í bygginguna okkar
aftur matartorgið
Che er átrúnaðargoð nemenda og má sjá margar svona myndir í háskólanum eins og í öllum borgum Argentínu. Það má til gamans geta að Che bjó í æsku sinni hérna bara einn klukkutíma frá, í litla fjallaþorpinu Alta Gracia.. og hef ég heimsótt sæta húsið hans og smellt kossi á ennið á styttu af honum.
Og nú myndirnar frá sýningunni:
þið getið smellt á til að sjá þær stærri


fallegar myndir, tvær neðstu, fleiri svona! hlýjustu mamma
ReplyDelete