Tuesday, August 24, 2010

Of margt til ad segja frá..

Hola amigos!

Ég aetla ad byrja á tví ad vara ykkur vid, tetta verdur langt blogg. Ég aetla samt ad reyna ad segja ekki frá tví sem er ekki merkilegt. Málid er bara ad mér finnst allt svo ótrúlegt. Ég gleymdi ad kaupa nýja dagbók tannig ad tad er kannski bara ágaett ad ég skrifi ítarlega, tid verdid bara ad tola tad. Ég finn ad íslenska málfraedin er strax komin í rugl eftir sex daga af mikilli enskunotkun og enn meiri spaenskunotkun.
Byrjum á byrjuninni.

Adfaranótt fimmtudags var ansi erfid tar sem ad ég byrjadi ad kvedja nánustu vinina á midnaetti og var komin heim um trjú og átti tá eftir ad pakka smá. Sídan nádi ég ad sofna en tá var bankad á gluggann minn og Halla&Frída maettar til ad gefa mér hinstu gjof sem á stód ad maetti adeins opna í Argentínu. Taer gleymdu ad reikna med hundinum svo ad allt húsid vaknadi og úr urdu einhver laeti en allt er víst fyrirgefid nú.
Um hálf-átta var ég út á flugvelli grenjandi eins og lítid barn ad kvedja fjolskylduna en svo héldum vid af stad í hid langa ferdalag. Vid flugum til New York og um leid og vid komum á JFK voru toskurnar okkar teknar í transfer og vid fengum boarding passann. Svo ad klukkan var eitt og flugid var ekki fyrr en seint um kvoldid. Tannig ad vid ákvádum ad besta leidin til ad byrja ferdina vaeri ad brjota reglur AFS og fara inn í Manhattan. Tad var svo heitt og mikil sól en ótrúlega gaman. Koddinn minn fylgdi med í for.
Vid fórum snemma tilbaka og áttum enn eftir 7 tíma bid tegar vid komum á flugvollinn. Tad var rosa gód stemming í hópnum en mjog mikil treyta. Flugskjarinn var rugladur tannig ad mun snemma en vid heldum kom kall: ,,Last call to Buenos Aires!” Aumingja Íslendingarnir hlupu ad Gate-inu skommustulegir á svip. Tegar vid komum inn í tessa risaflugvel frá AmericanAirlines blostu vid okkur mjog kósí saeti. En eftir tvi sem vid fórum lengra og lengra inn í vélina urdu saetin verri og verri. Okkur til skelfingar uppgvotudum vid ad vid vorum alveg aftast í hraedilegum saetum med litid pláss, umkringd illa lyktandi Argentínumonnum. Ellefu tíma flug.


Tegar vid komum til Buenos Aires fórum vid í gegnum tvo ótrúlega long eftirlit. Flugvallarstarfsmenn hofdu enga tolinmaedi fyrir floknu pappírunum sem vid hofdum. Um var ad velja ad vera afgreidd af konu og manni og madurinn hafdi ádur verid reidur vid samferdastúlku okkar tannig ad vid óskudum oll ad lenda ekki á honum. Audvitad var tad mitt hlutskipti ad fá ad kynnast honum betur og ég fékk oskur og laeti vegna einhverra hluta sem ég skildi ekki en á endanum komast ég burt. Á flugvellinum hittum vid fyrir 40 ítali á vegum AFS sem vid áttum eftir ad kynnast betur seinna.
AFS sjálfbodalidar skiptu okkur í trjá hópa til ad fara á trjá mismunandi stadi á námskeidid. Ég fór med strákunum. Tórunn, Helga og Karen fóru saman en aumingja Ásdís var sett ein í camp. Tegar ég labbadi yfir til hennar í teim tilgangi ad knúsa hana og kvedja kom omurlega ógedslegur og leidinlegur AFSsjálfbodalidi og bannadi mér tad! Okkur var hent í rútu og keyrt í klukkutíma. Húsin og umhverfid sem blasti vid okkur var svo allt allt odruvísi en eitthvad sem vid hofdum séd ádur. Allt var mjog fátaeklegt og sumar háublokkirnar litu út fyrir ad vera ad hrinja nidur. Vid áttum samskipti vid Ítalina sem voru allir mjog saetir. Sá eini sem kunni eitthvad í ensku hét Mauro og var feitur og ljótur. Okkur Magga líkadi strax mjog illa vid hann enda var hann med mjog stórt sjálfsálit og leit á sig sem leidtoga hópsins.
Campid sem vid vorum í er mjog gamall trúarháskóli og sáum vid bregda fyrir nunnum og munkum. Tad er óhaett ad segja ad okkur leid eins og vid vaerum stodd í Argentínuútgáfunni af Hogwartsskóla. Veggirnir voru úr marmara og stigarnir og gangarnir mjog storir og tignarlegir og tréhurdarnar á herbegjunum mjog háar. Ég lenti í herbegi med týskri stelpu sem taladi mjog litla ensku, ég fékk mitt eigid kósí badherbegi med sturtu og taegilegt rúm. Gunnsi og Maggi fengu mjog ótaegileg herbegi med engri sturtu. Teim hofdu ekki mikinn húmor fyrir tví. Tad voru hátt í hundrad manns í tessu campi, allsstadar ad úr heiminum. Ég taladi vid fólk frá Nýja Sjálandi, Ástralíu, USA, Evrópu og svo framvegis. Okkur var skipt í hópa og ég lenti í hóp m.a. med fullt af Tjódverjum og fólki frá Sviss og Austurríki sem vid kolludum líka bara Tjódverja sem teim fannst ekki fyndid. Ég kynntist mjog skemmtilegri og skrytni stelpu frá Helsinki – Tania heitir hún og vid urdum godar vinkonur yfir helgina. Hún býr í Corriantes og vid aetlum ad reyna ad heimsaekja hvor adra. Evrópubúarnir fengu allir mjog amerískan hreim vegna fjolda Bandaríkjamannanna. Ég kynntist stelpu frá Texas og svo Maddy sem býr í Alaska! Hún var í svona bol sem á stód: Bitch please, i'm from Alaska. Hún var fyndin.
AFSsjálfbodalidarnir voru mjog naes vid okkur og vid tóku allskonar sessions sem voru mismunandi og fjolbreytt og misskemmtileg. Tá var verid ad kenna okkur hvad tad er ad vera skiptinemi, hvernig Argentína er og ýmislegt fleira. Hérna er daemi um hluti sem vid fengum ad sjá, tetta fannst ítolunum skemmtilegt: http://www.youtube.com/watch?v=JAFQFvSPhQ8&feature=related
Tau sogdu okkur ad tad vaeri ekki farid inn í Buenos Aires í komunámskeidinu heldur vaeri búid ad breyta tessu og vid faerum á lokanámskeidinu tví tá kunnum vid spaensku og tad er oruggara.
Um kvoldid var slegid til haefileikasýningar. Vid fengum ad sjá ýmislega dansa og tvílíkt m.a. fumbyggjadans frá Nýja-Sjálandi med tilheyrandi oskrum. Vid Íslendingarnir kunnum enga dansa svo vid fórum upp á svid og sungum Lífid er yndislegt fullum, stoltum hálsi og sogdum frá Tjódhátíd í Eyjum. Tad vakti lukku. Eftir sýninguna var kveikt á Argentínskum electro tangó og brjáludu hiphoppi og dansad á svidinu. Vid Tania stódum med opinn munninn og horfdum á Argentínumenninna dansa. Tad er ekki einu sinni haegt ad lýsa tví hvernig tau hreyfdu sig og rassinn sinn.


Naesta dag voru tekin session og kynnst fólkinu. Vid sátum í mikilli sól í gardinum umkringd rósatrjám, tad var ótrúlega naes og gott ad tala saman. Ég var naestum haett ad sakna Íslands, bara rosa spennt yfir framhaldinu. Um kvoldid var svo farid í rútur í sinn heimabae. Maggi fór med fyrstu rútunni en ég og Gunnsi med teirri annarri. Tad var long leid gegnum Buenos Aires ad rútustodinni. Vid fengum smá smakk af tví hvernig Argentínumenn keyra sem er skal ég segja ykkur stórhaettulegt. Vid sátum fremst og okkur leid alltaf eins og vid vaerum ad keyra á í hvert skipti sem rútan beygdi. Vid keyrdum í gegnum slums eda svona shantytowns – fátaekrahverfi. Ég hafdi aldrei séd svona ádur og vid oskudum tess ad geta farid út í gongutúr med myndavélarnar okkar (sem eru bádar 400D med somu linsu haha). Vid toludum mikid vid AFSsjálfbodalida. Tau elska elska elska Bjork og Sigur Ros en segja ad Sigur Ros sé mjog underground haha. Tau hljodudu upp yfir sig tegar ég sagdi teim ad ég saei stundum Jónsa á djamminu. Eg taladi lengi vid strakinn um kvikmyndir og tónlist sérstaklega post-rock frá Bretlandi. Hann vissi meira en ég um tad og sýndi mér Smiths bolinn sinn.



Á rútustodinni var mikid panic tví vid vorum mjog sein. Allir voru oskrandi og hlaupandi. Ég kvaddi Gunnsa og fór inn í mína rútu med fólkinu sem fer til Rio Cuarto og Sampacho. Tetta var rosaleg lúxusrúta og taegileg saeti. Ég sat hjá Lisanne frá Belgíu sem býr í somu borg og ég og vid skemmtum okkur konunglega. Ég kynntist AFS sjálfbodalida sem heitir Gabriel og talar góda ensku.
Um nóttina vaknadi ég og fór ad leita ad klósettinu í myrkrinu. Einhvernveginn ratadi ég í klefann til rútubílstjórans sem kunni enga ensku og tetta var allt saman mjog vandraedanlegt. Klukkan fimm um nóttina vakti Lisanne mig tvi ad vid vorum ad koma til Rio Cuarto. Vid vorum ótrúlega stressadar ad reyna ad finna út hvad vid aettum eiginlega ad segja vid fjolskyldurnar okkar.
Á móti mér kom Lara og kyssti mig og knúsadi og sagdi mér ad vera alveg róleg og ad vid vaerum systur. Svo gerdist eitt sem ég skammast min ad segja frá og er nokkud tíbískt fyrir mig en ok. Ég fattadi tegar rútan var farin ad ég myndavélin mín var ekki í toskunni. Tá vard rosalegt panic og allir talandi hratt á spaensku og ég med gratstafina í kverkunum af treytu og hraedslu um vélina mína. Mér og Loru var hent inn í bílinn hans Gabriels og á eftir okkur komu tveir adrir AFS bílar. Vid keyrdum á orugglega 150 á lélegum vegum á naestu rútustod sem er langt í burtu tar sem vid vonudum ad rútan vaeri. Hun var tar og Gabriel fann vélina mína, sem betur fer. Vid fórum til Loru og ég fór ad sofa enda mjog treytt. Ég trúdi varla ad ég hafi orsakad allt tetta vesen um midja nott, nottina sem ég kom og hitti Loru

Daginn eftir vaknadi ég og myndin hérna fyrir ofan er tad sem blasti vid mér útum gluggann minn.
Maria Lara Ferrero eda Lara er 33 ára gomul og vid buum í ótrúlega litlu húsi rétt vid midju Rio Cuarto borgarinnar. Madurinn sem hún leigir húsid hjá er búinn ad ákveda ad hann vilji reyna ad selja húsid. Svo hann aetlar ad henda Loru útúr húsinu sem hún elskar og hefur lagt mikinn pening í. Svo hún tarf ad flytja í litla íbúd einhversstadar og ég fae nyja fjolskyldu eftir mánud. Lara og ég verdum samt ennta mikid saman og aetlum ad ferdast saman og fleirra. Hún er logfraedingur og vinnur í The Justice Hall, La Sala de Justica. Hún fór í háskóla í Cordoba sem er naesta storborgin hedan med 3 milljón manns. Hún elskar vinnuna sína en hún er á mjog lágum launum. Hún bjó í Buenos Aires med mjog ríkum kaerasta, hún segir mér ad hún lifdi eins og drottning og ferdadist um heiminn. Tau haettu saman og hún flutti hingad heim á sídasta ári og fór ad vinna. Hér býr oll fjolskyldan hennar. Nýlega eignadist hún kaerasta sem heitir Horacio og er mjog myndarlegur, hann er einhversskonar laeknir eda lyfjafraedingur held ég. Mamma&pabbi loru búa í Rio Cuarto en eiga stórt hús í Santa Rosa. Tad er um tvo tíma frá og er víst mjog fallegur stadur í fjollunum í mínútú fjarlaegd frá stórri á. Tetta er eins konar sumarbústadaborg fyrir middle class fólk og tar eru gódir skemmtistadir segir Lara. Vid forum tangad naestu helgi og svo oft aftur yfir arid sem ég verd hérna.
Húsid hennar Loru er minnsta hús sem ég hef farid inn í og samanstendur af badi, eldhúsi, pinulitilli stofu, bakgardi og tvemur herbegjum. Hún á tvo yndislega saeta en heimska hunda sem heita Chicha og Teo. Teo er alltaf étandi allt og eina sem Chicha vill gera er ad lata rulla boltanum sínum. Teir eru svona eins og franskir pudluhundar.

 Herbegid mitt er frekar stort og eg er med taegilegt rum. Tad er herbegid sem Lara er von ad mala i svo tad er malningardot inni í tví. Eitt sem ég tarf ad venjast er allur hávadinn frá gotunni útaf ollum gomlu bílunum. Lara á ekki upptvottavél né tvottavél og hún eldar aldrei svo hún á mjog lítid af eldunartaekjum (engan gódan hníf!). En hún á tvo sjonvorp haha og líka DVD sem er gott.
Rio Cuarto er rosalega Sudur-Amerísk borg. Áin er naestum upptornud núna tví tad er vetur og ta er allt turrt og tad rignir ekkert. Á sumrin er hún full af vatni og fólk fer tangad og badar sig vid stífluna. Tad er mikid um mjog haar blokkir og hús hér í midbaenum og tad er eitt stórt adaltorg med gardi. Vid tad eru falleg há hús, la Municipalidad sem er Tinghúsid og svo adalkirkjan. Adalverslunargatan er vid torgid og bara nokkrar blocks frá mínu húsi. Vid hana stendur skólinn minn, Colegio Hispano Argentino. Allt er krokkt af borum (Elvis Presley rock bar lítur vel út), kaffihúsum, fatabúdum og fleira. Allt er ótrúlega ótrúlega ótrúlega ódýrt. Ég og Lara keyptum nýjan síma fyrir mig tví gamli virkar ekki í Argentínu, mjog fínn Nokia sími á 6000 íslenskar. Fotin eru álíka mjog ódýr. Ég er búin ad fara í gegnum mesta fátaekra hverfid og tad er ekki jafn slaemt og í Buenos Aires. Eitt sem mér finnst mjog serstakt ad útum allt eru lausir hestar. Lara sagdi mér ad fátaeka fólkid sem á ekki bíla notar hestana. Svo í gaer var ég ad chilla í herbeginu mínu í gaer og tá labbadi hestur framhjá glugganum mínum haha.
Tad mest odruvísi sem ég sé er ad Argentínumenn eru meira ad segja mun verri bílstjórar en íslendingar. Enginn hérna fer eftir umferdarreglunum. Reglan sem gildir er fyrstur kemur fyrstur faer og hver er frekastur. Allar goturnar eru einstefnugotur og bílarnir trodast fyrir framan hvern annann. Fólk er á hjólum og vespum sem fara upp á gangstéttina og trodast milli bílanna sem eru allir mjog gamlir og ad detta í sundur (Lada Sport, Bjollur o.fl.). Tad er enginn haegri regla heldur sá sem kemur fyrstur ad gatnamótunum. Allir eru sífellt bolvandi og blotandi og konur eru almennt taldar slaemir bílstjórar. Gangandi vegfarendur eru minnimáttar og tad eru engar gangbrautir, fólk tarf bara ad bída oft lengi eftir tví ad tad er pláss á veginum og tá hleypur madur hraeddur yfir gotuna. Tad er mikil sól og ollum er heitt og allir eru med útvarpid í botni. Eiginlega eina sem haegt er ad líkja baedi umhverfinu og umferdinni vid er Ítalía. Manni lídur eins og madur sé staddur í Róm nema ad allt er mun fátaeklegra og skítugara. Allt er svo ótrúlega odruvísi en tad sem ég er von. Mér finnst tetta svo fallegt í sínum ófullkomleika ad ég sit hugfangin og stari útum gluggann á fólkid og húsin sem eru flest eitthvad gomul og sjúskud, brún bleik gul appelsínugul. Tar er erfitt ad útskýra, tid verdid bara ad sjá myndirnar mínar.
Áfram med soguna longu:
Ég vaknadi á sunnudaginn um hádegi og fór í sturtu og taladi vid Loru. Hún spurdi mig hvort ég fíladi U2 og Shakiru og ég sagdi kurteisilega ad tad vaeri OK. Sídan spurdi hún hvort ég hlusti á Pink Floyd og Bítlanna og tá voru vid meira á somu línu tvi hún sagdist elska tannig tónlist.Hún talar ágaetis ensku nema málfraedin er í rugli og eftir trjá daga med henni er ég farin ad tala ensku eins og hún. Hún sagdi mér ad vid vaerum ad fara ad hitta fjolskyldu hennar. Tá var bibbad fyrir utan og ta var kominn eldgamall raudur litill jeppi. Úr honum stigu tveir ansi myndarlegir Argentínustrákar. Lara tjadi mér ad annar teirra vaeri fraendi hennar, primo, sem heitir Ramiro og hinn vaeri vinur hans Pablo.Teir vaeru 21 og 22. Teir brostu og hlógu og tau toludu um mig. Lara sagdi vid mig á ensku ad teir hefdu verid ad tala mikid um mig og hlakka til ad sja mig og ad teim fyndist ég mjog saet. Teir urdu mjog vandraedanlegir ta. Í aftursaetinu sat Euchenia(held tad se skrifad svona) sem er cunada (mágkona) Loru og fullt af krokkum. Ég, Lara, Euchenia og allir tessir krakkar tródum okkur tangad og Ramiro setti ACDC í botn og keyrdi af stad. Tad var 28 stiga hiti og mikil sól og vid keyrdum hratt í gegnum borgina og ég gapti af umhverfinu og hraeddist umferdina. Enginn notar bílbelti en engar áhyggjur mamma og pabbi ég krafdist tess ad sitja í eina saetinu tar sem var bílbelti. Vid keyrdum út fyrir borgina og framhjá einum af tvemur háskólunum og er hann mjog flottur. Ramiro er ad laera media design tar og hann bjo til stuttmynd í sumar eins og ég. Vid aetlum ad kikja a velina hans vid taekifaeri

Vid komum ad gomlum sveitabae sem fjolskylda Loru á en tau aetla ad selja núna brádum, tó teim tyki mjog vaent um hann. Tar komu á moti mér enn fleiri litlir fraendur og fraenkur og nokkrir adrir innan fjolskyldu Loru. Ég hitti bródur Loru, Manuel, sem frekar feitur en mjog skemmtilegur og svo annad fólk. Allir knúsudu mig og kysstu mig tvisvar á kinnina og sogdu : Hola! Que Tal!. Svo sogdu tau naestum strax vid Loru: Aaaa se rubia y muy muy bonita aaa te quiero te quiero. Tad týdir ad teim finnst ég vera falleg og ljóshaerd og tau elska mig. Tau eru oll ótrúlega ástrík, hávaer og skemmtileg. Enginn talar stakt ord í ensku nema Ramiro og Pablo skilja mig stundum og reyna ad segja eitthvad á moti en eru venjulega mjog hlaegjandi á medan. Tad var ótrúlega fallegt tarna, pálmatré og stór turr akur. Tarna er líka stór gomul tóm sundlaug sem Lara lék sér í tegar hún var lítil. Eg fékk ad kynnast sannleikanum í tví ad Sudur-Ameríku menn taka sér sinn tíma og eru ekkert ad flýta sér. Tad tók svona tvo tíma ad gera matinn tilbúinn tar til vid bordudum, fyrsta góda matinn í Argentínu. Tetta heitir Asado og er beisiklí bara kjot og margar tegundir af tvi. Tau eldudu tad yfir eldi sem tau kveiktu í eldstaedi. Bragdid var aedislegt. Vid vorum tarna allan daginn ad njota okkar í sólinni en nú vorum vid mun faerri en ég hitti fyrr um daginn. Ég var stodugt hlaegjandi tegar ég eda strákarnir eda einhver annar var ad reyna ad tjá sig á spaensku eda ensku. Lara er mjog dugleg ad týda fyrir mig. Ég laerdi mjog morg ný ord á tví ad sitja tarna allan daginn. Vid fórum svo í gongutúr um tetta stóra land og tíndum sítrónur af trjánum og ég fór í fótbolta med strákunum. Fólkid er mjog fyndid og er stodugt ad strída hvor odru og kalla hvort annad scheva og puta sem týdir hóra haha. Allir toludu stodugt um mig og mér fannst skritíd ad fá svona mikla athygli, ég vildi helst bara hlusta og laera. Tau voru líka mjog áhugasom um Ísland og fannst margt mjog ótrúlegt sem ég sagdi frá. Teim fannst ég mjog hugrokk ad koma hingad og sérstaklega tar sem ég missti af brudkaupi bródur míns, teim fannst tad hraedilegt. Ramiro og Pablo budu mér í partý á fimmtudaginn og ég játadi, núna er ég mjog stressud yfir tví haha. Vid vorum tarna frá tví ad sólin var haest tar til hún settist, tau reyktu mikid og vid drukkum mate og bordudum nammi. Mate er svona tjodardrykkur Argentínu, eins og te en er litid á tad meira eins og kaffi. Fólk hittist og deilir mate.

Svo kom Horacio á bílnum sínum og vid keyrdum í fjolskyldufyrirtaekid sem er plontu og trjáasala og ég var kynnt fyrir fullt af fraenkum og fraendum sem oll voru mjog spennt ad hitta mig og gód. Ég og Lara toludum mikid um kvoldid, hún sagdi mér hvad allir vinir hennar, fjolskylda og allir í skólanum eru spennt ad hitta mig. Ég er búin ad komast ad tví tar sem allir í skólanum eru búin ad adda mér á facebook og tala vid mig. Einn addadi meira segja Hollu og fór ad segja henni hvad hann hlakkadi mikid til ad hitta mig haha. Hún segist stodugt elska mig ad vid séum systur, ég sé frjáls og megi drekka og djamma en ég eigi ad virda hana.
Horacio kom og tad kom í ljós ad vid erum baedi miklir Lynch og Almódóvar addáendur svo tad var gaman.

Í gaer vaknadi ég og gekk frá hlutum og beid tar til Lara kom heim úr vinnunni klukkan 2. Hún eldadi kjúkling med osti úr pakka og kartoflumús úr pakka og tad var frekar vont tó ad ég segdi henni tad ekki. Ég hitti sídan AFS trúnadarmennina mína sem eru tvaer rosafínar stelpur en adeins onnur teirra kann eitthvad í ensku. Vid toludum um ad reyna ad redda píanói fyrir mig, ad ég faeri med Loru í myndlistarskólann og raektina og hvert ég aetti ad fara í tangó og salsatíma. Vid raeddum líka moguleikana á tví ad ég gaeti farid í annan hvorn háskólann á naesta ári og kannski ad laera kvikmyndafraedi eda media design. Tad veltur audvitad allt á spaenskunni minni sem er ekki svo gód í augnablikinu en ég er ad reyna ad laera. Sídan kom einn besti vinur Loru, Juan Baptiste í heimsókn. Hann talar mjog goda ensku med miklum breskum hreim og hann dýrkar Skotland og vid toludum lengi um breska tónlist.
Búdirnar í Rio Cuarto eru opnar frá 9-12, sídan er siestan, og svo eru taer opnar frá 4-8. Svo klukkan sex fórum ég og Lara ad versla sem mér finnst frekar undarleg tímasetning. Vid fórum nidrí bae ad leita ad skólabúningnum mínum. Svo kom Ramiro og vid keyrdum út fyrir baeinn í WalMart. Tad var mikid aevintyri ad fara í Argentínskan súpermarkad. Ég leitadi eins og brjálud ad rjómaost med svortum pipar en engin lukka, Lara hatar svartan pipar og kók og spaghetti bolognese og almennt sterkan mat og hún á ekki braudrist haha. Svo vid erum frekar ólíkar tegar tad kemur ad mat. Hún eldar líka aldrei. Ég setti í korfuna trjar maltidir, efni í heimabakada pizzu, kjúkling og spaghetti bolognese fyrir mig og spaghetti med rjoma fyrir hana. Fólk herna hefur aldrei heyrt talad um Tandoori sósu fyrir kjúkling og reyndar var núll úrval af sósum svo ég keypti einhverjar pastasósur. Sídan fórum vid í áfengisdeildina og vid mér blasti heill veggur af heilslítraglerbjórfloskum á 200 ísl.kr. Lara og Rami trúdu mér ekki tegar ég sagdi ad ég hefdi aldrei sed tetta ádur og ad á Íslandi getur madur ekki keypt áfengi í supermarkad.Vid keyptum einn lítra af Stellu fyrir mig og einn fyrir Loru haha. Ég er ordin 18 ára svo ég er logleg ad kaupa áfengi hehehe ehehe.
Sídan sáum vid drykkinn Fernet sem er vinsaelasta drykkur Cordoba ríkis, héradid mitt. Hér drekka víst allir bjór eda Fernet blandad í kók, medfylgjandi mynd útskýrir nógu vel.



Rami baud mér ad koma á naestunni í bíltúr med sér á blaejubílnum sínum tegar tad er gott vedur, ég hlakka mjog mikil til!Vid fórum heim og mér tókst ad elda mjog gódan kjúkling í sósu med hrísgrjónum tó ég vaeri í heimsins versta eldhúsi. Lara vard svo ánaegd og sagdi ad svona matur hefdi aldrei verid eldadur hér og húsid hefdi aldrei fundid svona góda lykt. Eitt sem ég aetla ad segja frá: í Argentínu bordar fólk kvoldmat frá hálf tíu til hálf ellefu á kvoldin og fer svo ad sofa! Mjog skrítid.
Í dag vaknadi ég vid ad Rami sótti mig og vid nádum í Loru og fórum í skólann minn í heimsókn. Ég hitti skólastjórann sem virdist mjog fín. Sídan lobbudum vid inn á ganganna og einn strákur tók eftir mér og kalladi: NINA NINA! Ádur enn ég vissi hvad var í gangi var ég gjorsamlega umkringd svona 20 strákum sem stordu á mig eins og eitthvad framandi dýr. Ég fór alveg í steik og rodnadi. Teir fóru í rod til ad knúsa mig og kyssa mig sem er audvitad mjog venjulegt í tessu landi. Ég fór svo med kennara ad reyna ad finna skólabúning á mig og med okkur kom stelpa sem er med mér í bekk. Hún heiti Julia og talar smá ensku, hún sagdi mér ad ég gaeti verid alveg róleg, hún aetlar ad passa mig og segja strákunum ad láta mig í fridi haha. Hún er rosalega falleg. Ég var svo látin ganga alveg ein inn í kennslustofuna mína og kynna mig fyrir framan bekkinn. Tau eru oll svo falleg strákarnir og stelpurnar ad ég fae hnút í magann haha. Ég kynnti mig og tau kynntu sig oll. Sídan gerdist eitt mjog vandraedanlegt:
Kennarinn: What do you like?
Nína: Me gusto música y peliculas (Ég fíla tónlist og kvikmyndir)
Kennarinn: Do you like to party?
Nína: Si si cerveza (Jájá, ég fíla bjór)

Tá sprakk allur bekkurinn úr hlátri og kennarinn vard mjog vandraedanlegur á svip. Tá var hann víst ad meina party án áfengis eda einhverskonar danssamkomu segir Lara.
Ég fór alveg í koku og kalladi á Loru til ad bjarga mér. En eftir smá stund var tetta allt gleymt. Krakkarnir spurdu mig sídan hvort ég vildi koma med teim ad dansa eftir skóla. Ég sagdi ad ég vildi heldur gera tad seinna eftir ad hafa komid í skólann um morguninn. Eftir tetta fórum ég og Rami ad labba eitthvad, vid erum mjog fyndin saman tvi hann kann litla ensku og vid erum bara saman í togninni og bendum til ad tjá okkur, en tad er fínt haha. Nú sit ég heima og bíd eftir ad Lara komi úr vinnunni og vid forum ad leita af skólabúningnum. Chicha situr í fanginu mínu og vaelir tví hún vill fara í boltaleik og Teo liggur eins og dólgur á gólfinu saddur og ánaegdur. Ég held ég fari adeins út í gongutúr med tau í tessu ótrúlega góda vedri og kíki í ísbúdina sem er svona 10 metrum frá. Ég er mjog stressud fyrir ad fara í skólann á morgun klukkan 7:30 og hlakka til ad koma heim og fá mér siestu.

Hasta Luego! Chau chau.

Wednesday, August 18, 2010

Á leiðinni

Ég er að flytja til Argentínu sem skiptinemi á vegum AFS. Blogg þetta er ætlað fyrir fjölskylduna og forvitna vini og stefni ég að því að blogga nokkuð reglulega en ekki of mikið.
Ég flýg í fyrramálið með hinum Argentínuförunum til New York og verð þar yfir daginn og tek síðan næturflug til Buenos Aires. Þar tekur við nokkra daga námskeið með skiptinemum allsstaðar að úr heiminum.
Næst kemst ég (vonandi)  til Cordoba fylkis og til borgarinnar minnar, Ríó Cuarto sem er staðsett í miðri Argentínu. Ágætis fjarlægð er til Buenos Aires, Santiago, Rio de Janeiro, Andesfjallanna o.s.frv.
Stelpan sem ég átti að búa hjá lenti í einhverjum vandræðum svo að hún verður bráðabirgðafjölskyldan mín þar til að önnur finnst á sama stað. Ég mun ganga í einkaskóla sem leggur áherslu á hugvísindi, tónlist og tangó.Krakkarnir í bekknum mínum eru þegar búin að hafa samband við mig í gegnum fésbókina og er ég víst boðin í party þegar ég kem.
Ég er mjög spennt að komast út í heim en um leið aðeins stressuð yfir fyrstu vikunum og mánuðunum þar sem ég verð eins og lítið barn, kann ekkert á samfélagið né að tjá mig. Held nú samt að tilhlökkunin sé yfirsterkari. Suður Ameríka.

Sjáumst eftir ár!
Hasta Luego!

rio cuarto