Wednesday, May 18, 2011


Ákvað að skella inn hérna nokkrum myndum sem ég hef tekið frá lífinu undanfarið. Ég hef það bara gott. Fékk 10 í prófi í ljósmyndun í háskólanum um virkni myndavélarinnar. Næstu helgi förum við Lisanne í kórbúðir sem verður stuð og á föstudaginn erum við að syngja (einar) þjóðsöng Argentínu á útskrift í háskólanum, verður áhugavert. Maggi kom í heimsókn síðustu helgi og fannst mér gaman að geta sýnt Íslending borgina mína, fjölskyldu, vini og lífið. Það er orðið pínu kaldara, eftirmiðdags-miðbæjar-outfittið breyst úr stuttbuxum og hlýrabol yfir í gallabuxur og stuttermabol. Ég kvíði fyrir því að fara eftir u.þ.b. tvo mánuði en á meðan fæ ég stundum söknuðartilfinningu í einstaka hluti eða manneskjur. Ætli maður eigi ekki bara að reyna að lifa sem mest í augnablikinu.

Þið getið smellt á myndirnar til að fá þær stærri



Þetta er Maria Florencia, eða Flor (blóm), systir mín. Á myndinni er líka fjölskylduhundurinn, hann Yago, 1 árs gamall (sagt Sjago). Flor er mjög góð manneskja og vinkona, eins og sannast þegar hún bauð mér að koma að búa hjá sér. Hún er nánast alltaf í góðu skapi og tilbúin til að hjálpa mér með allt. Hún er líka einstaklega hæfileikarík að koma sér í vandræði þegar það kemur að ástinni, mér og hinum stelpnanna til mikillar skemmtunar. Hún er alltof upptekin af glæpaþáttum eins og CSI, Law&Order og Criminal Minds og bókstaflega horfir á svona 2-3 á dag. Hennar draumur er að verða eins og Horacio Caine og hefur uppgvötað að það er hægt að læra að verða svoleiðis í Mendoza, öðru fylki. Ég hef oftar en einu sinni reynt að sannfæra hana um það að í raunveruleikanum virka hlutirnir ekki jafn kúl og í CSI en hún hlustar ekki. Hugsanlega á næsta ári þegar hún er orðin 19 ára flytur hún til Boston í eitt ár til að fara í skóla eða vinna, og þá ætla ég að heimsækja hana eða helst bara fá hana til Íslands.



Þetta er Karim, besti vinur minn og sætisfélagi í menntaskólanum. Hann er frá Líbanon upprunalega og talar því arabísku og svo bjó hann í Brasilíu og talar fullkomna portúgölsku. Hann skilur mína aðstæðu mjög vel og var svo hjálpsamur í byrjun, gafst aldrei upp á því að reyna að útskýra fyrir mér og eiga samræður við mig þegar ég kunni ekkert, með ýmsum skemmtilegum leikhæfileikum. Hann er líklega besti strákavinur sem ég hef eignast um ævina, og einn af þeim sem ég mun sakna mest þegar ég fer. En hann er búin að gefa mér loforð um að í framtíðinni, einhverntímann, ætli hann að heimsækja mig. Sjá Ísland er nýi draumurinn hans. Mamma, geturu sent líka aðra bók í viðbót með myndum frá hálendinu, langar að gefa honum líka. Karim er 18 ára og djöflast um göturnar á áratuga gömlum, gulum Fiat. Bílar eru ástríða hans og arkítektúr.


Þetta var þegar ég og Nicolas Wagner, eða Nico, fórum í nokkra tíma göngutúr með hundana hans tvo. Keikó (eftir hvalnum) og León (eða Ljón). Ég tók eftir því að þeir eru allir með eins hárlit, og allir frekar ljónalegir. Nico talar fullkomna ensku, hlustar á tónlist sem enginn hérna hlustar á einsog Joanna Newsom og CocoRosie, og er einlægur Tarantino aðdáandi.

Þetta er hún vinkona mín, Naiara Lo Duca, eða Nai. Hún er eftirsótt módel hérna í Córdoba og þarf oftar en ekki að sleppa úr skóla til að fara eitthvað og módelast. Hún segist þó aldrei geta orðið súpermodel því hún sé ekki ljóshærð. Sem er satt, hérna komast konur mjög lítið í þessum tiltekna bransa ef þær eru ekki ljóshærðar eða með stór brjóst. Mér finnst hún persónulega vera með mjög fallegt hár og gullfallegt andlit. Á þessari mynd lúkkar hún svaka kúl en venjulega er hún bara mesti kjáni sem ég veit og alveg útúr heiminum oft. Svona týpan sem er alltaf að lenda í vandræðalegum aðstæðum en er samt sífellt brosandi og lýsir upp gráa skólastofuna.


Eins og ég sagði, þá kom Maggi í heimsókn yfir helgina frá föstudags-mánudags. Við lentum í allskonar ævintýrum með stelpunum, Lisanne og Sophiu, en vorum mikinn tíma í mínu húsi og Magga tókst að kynnast fjölskyldunni minni og mamí þá sérstaklega. Á þessari mynd erum við stödd á einu uppahalds kaffihúsinu mínu í Rio Cuarto, Luis Maria, þar sem hægt er að fá bókstaflega bestu kökur og besta ís í heimi. Þarna vorum við samt nýbúin að fá okkur pizzu, bíðandi eftir ísnum. Ljósmyndari er Lisanne.


Þetta er Guadalupe Yacomusi (Guadi). Hún er eina almennilega dökka stelpan í bekknum mínum. Enda er dökkt fólk venjulega fátæka fólkið í Argentínu (meira en helmingur þjóðarinnar). En pabbi hennar tókst að vinna sig upp og stofna bakarí sem er núna besta og eftirsóknasta bakarí borgarinnar (La Morena - Hin dökka). Guadalupe er líklega eitt fallegasta nafn sem ég hef heyrt og Sophia er sammála mér enda er hún búin að ákveða að skíra væntandi framtíðardóttur sína það. Guadi sjálf er yndisleg stelpa, gullfalleg og svo fyndin og hjartahlý. Ég reyndar skildi hana ekki fyrr en eftir svona 4 mánuði því hún er einmitt týpan sem talar á ljóshraða og gráthlær á milli, mjög oft á dag. Dæmi um alveg rosalega góða vinkonu mína hérna. Ég segi henni alltaf að af öllum, þá VERÐI hún að heimsækja mig því að þeir íslensku eigi nú eftir að slefa yfir Latino, dökkri fegurð hennar. Næ samt aldrei að fá hana til að trúa mér. Ég held allavega að hún þyki mjög falleg á Íslandi. Hef ég rétt fyrir mér?

Við stelpurnar bjuggum til argentínska matinn "Bagna Cauda" um daginn heima hjá mér sem er sérstök sósa búin til úr hvítlauk og ansjósum og svo er díft öllu sem þér dettur í hug ofan í það og borða með pinna. Kjúkling, kjöt, grænmeti, pasta..
Síðan bjó ég til tvær ekta súkkulaði Djöflatertur þar sem það finnst ekki hér á landi.
Ætla að láta fylgja með nokkrar fleirri myndir. 
Natasha og Flor

Melani (Meme, Melu), Carolina (Caro), Natasha (Nash), Naiara (Nai) og Eugenia (Euge) að borða köku
Kaffi með mjólk - Guadalupe og Julia.

Nai með dansmúv.





Fór með Karim og Natöshu að leika hjá gömlu lestarstöðinni í hverfinu mínu (miðbænum):







Jæja, nú er að koma kvöldmatur og Lisanne er orðin frekar óþolinmóð hérna á kaffihúsinu Dos Banderas bíðandi eftir að ég klári. Vona að þið hafið það gott. Adiós.

2 comments:

  1. Skemmtileg frásögn og gaman að fá svona skýra mynd af vinunum góðu. 2 mánuðir .. en svo amk 80 ár eftir til að ævintýrast!... ps. já tékka á gjöfum....

    ReplyDelete
  2. ahh ég elska bloggið þitt,
    miss you!

    ReplyDelete