Nú brotna ég undan þrýstingi úr norðrinu, gef frá mér skýrslu um líf mitt og játa syndir mínar. Ég sit á litlu sætu kaffihúsi við torgið og horfi á litla krakka leika sér í gosbrunninum. Ég er að drekka góðan bjór sem kostar 200 kr og narta í súkkulaðibitaköku. Ég hef það virkilega virkilega gott. Frábært en erfitt. En ég veit að héðan í frá verður þetta bara betra og betra.
Það allrabesta við að búa í Suður-Ameríku er fólkið. Ég vön því að hafa alla mína ævi verið með stanslausa rútínu og tekið metnaðinn í öllu mínu námi framar því að leika mér og vera krakki/unglingur. Stundum hver klukkutími skipulagður. Fólkið hérna metur lífið allt öðruvísi. Flestir vinna til 1-2 og síðan á maður að nota daginn í að gera það sem maður vill gera. Njóta lífsins. Taka sér siestu, eyða tíma með fjölskyldunni, fara með vinunum í bæinn eða almenningsgarðinn, drekka bjór eða mate, spila á hljóðfæri, horfa á mynd eða dansa. Og mér líkar þetta vel.
Með hverjum deginum eykst spænskukunnáttan. Ég er farin að geta skilið nánast allt í nútíð ef það er ekki talað of hratt. Áfangarnir í skólanum eru sumir mjög áhugaverðir (heimsspeki, sálfræði, fjölmiðlafræði, human communication, tangó, tónlist...) en það er svo pirrandi að geta ekki skilið kennarann, lesið bækurnar og tekið þátt. Hérna eru engin tæki til neins. Krakkarnir læra líffræði en gera aldrei neinar tilraunir. Ég kann svo sannarlega að meta MH núna og ég held að það sem ég sakna einna helst á Íslandi sé að læra.
Það eru oft frímínútur í skólanum eða eyður og þá sitjum við í sólinni, það eru alltaf nokkrir með gítara og fólk syngur og dansar, drekkur mate eða borðar nammi. Fyrstu dagarnir mínir í skólanum voru mjög erfiðir þar sem ég var ný og allt öðruvísi í útliti. Allir störðu á mig, töluðu um mig og bentu og ég var alltaf umkringd forvitnum krökkum. Kennararnir notuðu mig óspart sem námsefni þar sem margir áfangarnir tengjast menningarmismuni. Sem dæmi báðu allir enskukennararnir mig um að koma í tíma til sín og tala ensku við fólkið. Ég var spurð t.d. út í muninn á skólanum mínum og þessum og ég sagði að það væri ekki hægt að bera þetta saman. Svo fæ ég sífellt alltaf sömu spurninguna – tienes novio (áttu kærasta?). Í einum fyrsta tímanum mínum var kennarinn meira segja kominn út í djúpar hugleiðingar um ástarlíf mitt og muninn á ástinni og hér og í Vesturlöndunum. Þetta var og er mjög óþægilegt en hérna eru prívatlíf fólks bara metið öðruvísi. Þó að fólkið í skólanum mínum sé gott og skemmtilegt er ég samt svo ólík þeim. Stundum líður mér eins og ég sé alltof gömul fyrir þetta. Í tímum er líka oft mikill hávaði og ég hugsa stundum að ég sé komin aftur í Digranesskóla. En allt getur ekki verið fullkomið og þessi smáatriði fara ekki mikið í mig. Ég hlakka bara til að læra spænsku og geta tekið þátt í náminu. Ég hlakka síðan ennþá meira til að fara í háskóla í mars eftir sumarfrí og vera aðeins í kringum eldra fólk. Ég get ekki ákveðið mig hvort mig langar að læra eitthvað listatengt eða eitthvað eins og sögu Argentínu eða Rómönsku Ameríku. En ég hef nógan tíma.
Aðrir vinir mínir eru svo hinir skiptinemarnir. Við erum átta samtals sem erum í Rio Cuarto. Pete frá Taílandi, Ellen&Justus frá Þýskalandi, Sophie frá Austurríki, Taylor frá Colorado, Lisanne frá Belgíu, Matteo frá Ítalíu og ég. Ég er eina ljóskan. Við erum búin að hittast oft og gera mikið saman eins og að fara á markaði og fá okkur bjór/mate. Ég tók Lisanne með mér í eitt risapartý í skólanum mínum og við fórum í partý í skólanum hans Matteo (richkids skólinn í borginni). Justus er nágranni minn og videospólu/ísfélagi þar sem hvortveggja er í einna mínútu fjarlægð frá húsunum okkar.
Lisanne & Matteo
Hérna dansa allir og þá meina ég að þau dansa öll ótrúlega ótrúlega vel. Á fyrsta djamminu trúði ég ekki eigin augum þegar ég horfði á stelpurnar dansa. Ég held því fram að það hljóti að vanta nokkur bein i mjaðmirnar þeirra, svona hreyfingar eru varla raunverulegar. Vinsælustu dansarnir eru quartetto, cumbia og reggyton. Mismunandi dans við hvert lag. Ég veit aldrei hvað ég að segja þegar ég er spurð hvaða dansa fólk dansar á Íslandi. Ég reyni að útskýra að við gerum venjulega bara eitthvað út í loftið haha. Reggyton er dans sem er við tónlist með miklum bassa og miklum hraða. Þetta er mun ýktara en hiphop og hreyfingarnar snúast um að hrista rassinn og brjóstkassann út í rauðan dauðann. Eins og er almennt viðurkennt á Íslandi hef ég aldrei verið neinn rosalegur dansari. Já, Halla og Fríða skemmtu sér vel yfir þessu í gamla daga. En á tvemur vikum í danskennslu er ég ný manneskja. Ég vissi að ég ætti þetta í mér.
Ég fer í salsa í Habana Mix með Lisanne tvisvar í viku. Ellen er líka þar en hún kom hingað í febrúar og er orðin ein af Habana Mix fjölskyldunni (er að fara með þeim til Sao Paulo Brasilíu eftir mánuð, ég er mjög afbrýðissöm). Við Lisanne vorum frekar stressaðar fyrst en þetta kom eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir og í enda tímans vorum við búnar að ná dansinum á fullum hraða! Svo fór ég með Matteo í Reggyton. Það var soldið önnur saga. Salurinn var troðfullur af stelpum með killer líkama og flotta rassa. Það tók mig frekar langan tíma að ná dansinum og ná í hugrekkið til að sveifla líkamanum rétt en þetta hófst. Matteo er ennþá bara lélegur haha. En við erum búin að ákveða að taka þetta upp þegar við erum orðin góð og senda í So You Think You Can Dance.
Síðan ætlum við að byrja í tangó bráðum líka. Fórum í einn tíma en þetta er smá vesen með tímana sem við þurfum að finna út úr. Það er möst að læra tangó ef maður er í Argentínu í heilt ár.
Í íþróttum í skólanum erum við stelpurnar í bekknum svo að búa til reggyton dans sem á víst að innihalda eitthvað hiphop eða salsa. Þetta verður síðan sýnt á lokasýningu fyrir framan ALLAN SKÓLANN. Shit. Til að gefa ykkur hugmynd um hverskonar tónlist reggyton er þá fylgir hérna lagið sem við erum að búa til dansinn við.
http://www.youtube.com/watch?v=WcyT0a8Ui6w
en ég vil bæta því við að reggytontónlistin í habana mix er mun skárri, veit bara ekki hvað það er.
Habana Mix
Já ljúfa lífið að þurfa ekki að læra því maður getur það ekki. Koma heim og við tekur mamasita með heita ljúffenga máltíð. Sofa. Fara svo út og ganga í góða veðrinu um sætu borgina sína. Birtan er svo yndisleg þegar sólin er byrjuð að setjast um fjögur-fimmleytið. Leigja mynd eða chilla með vinum, fara heim og borða aðra ljúffenga máltíð. Sofa.
Eftir siestu hef ég oft farið með skólafélögum eða skiptinemum á eitthvert af aðaltorgunum. Þar eru margar kioscur sem eru svona básar og þar er seldur bjór, góður bjór sem kostar mig bara 150 íslenskar krónur sem er snilld. Við drekkum einn eða tvo og höngum þarna. Tvisvar er ég búin að fara heim til einhvers og horfa á mynd. Það kostar mig um 200 kr að leigja mynd haha. Og hér eru videoleigur í hverri götu, ég fór um daginn í eina stóra stóra og þar var meira úrval en á Íslandi. Myndunum var raðað eftir leikstjóra. Kókflaskan kostar svo 60 kr. Leigubíll í fimm mín kostar 250 kr. Skór og föt mjög ódýrt. Græjur og stöff eins og míkrófónar, gítarar og magnarar kosta ekki neitt. Það er allt allt mjöööööög ódýrt.
Með Nati á torginu
Ég fékk semsagt nýja fjölskyldu fyrir viku en er samt og mun vera í miklu sambandi við Löru.
Við búum í fallegu húsi aðeins 20 mín labb frá skólanum og aðaltorgi bæjarins. Gatan mín heitir Shakespeare. Við hliðina er stór súpermarkaður, videoleiga, ísbúð og margt fleira. Ég gjörsamelega dýrka að fara í skoðunarferð í súpermarkaði í Argentínu. Eitt sem er sweet eru 1,25 lítra GLERkókflöskur og endalaust úrval af ostum mmmm. Og hér er ÖRBYLGJUOFN! Alveg ný reynsla fyrir mig. Svo eru fjögur baðherbegi. Eitt mjög skrítið er að í þessu landi er alltaf lág skál við hliðina á hverju klósetti og úr henni sprautast vatn í loftið. Ég velti því lengi fyrir mér hvað þetta er en komst svo að því að þetta er notað í stað klósettpappírs þegar fólk gerir hægðir sínar. Samnemendum mínum finnst ógeðslegt að þetta fyrirfinnst ekki á Íslandi.
Ég á þrjú systkini, tvo bræður og eina systur (loksins eignast ég systur). Pabbi minn er sonur eins frægasta málara Argentínu, Michaelangelo Vieyda og hann heitir Miguel. Mamma mín heitir Rita. Þau eru tangódansarar, ung og mjög falleg. Þau eru líka mjög ástfangin af hvoru öðru. Fjölskyldan bjó í Ítalíu og hefur ferðast mikið t.d. líka til Brasilíu. Mamma mín eldar mjög góðan mat, argentínskan sem og ítalskan. Þau eru mjög áhugaverð og gaman að tala við þau en tala litla ensku sem hjálpar mér að læra spænsku en ég verð betri og betri með hverjum degi og get núna skilið nánast allt í nútíð. Það eina sem mér finnst slæmt er að ég deili herbegi með systur minni Melinu sem er 13 ára balletdansari. Allt í herbeginu er bleikt og sykursætt. Nú er ég svo þakklát fyrir æðislega herbegið mitt heima á Íslandi. En ég veit um eina búð sem selur plaggöt'n stuff og svo er ég búin að hengja upp myndirnar mínar af ykkur Íslendingunum svo vonandi reddast þetta og ég venst þessu. Hér er mynd af götunni, í fjarska er stór eldgömul olíuverksmiðja.
Bróðir minn Maximiliano eða Maxi er 16 ára en mjög þroskaður eftir aldri og á marga vini á mínum aldri og eldri. Hann er mjög vinsæll í skólanum sínum (þau fara í annan skóla en ég) og ég get ekki gengið (eða hjólað) um göturnar með honum án þess að hann þekki aðra hvora manneskju (og allir, líka strákar, heilsast með kossi á kinn í Argentínu). Hann er fótboltagaur, spilar á trommur og er frábær gítarleikari, ég ætla að nýta mér hljóðfærin hans og reyna að læra. Síðan á ég einn krúttlegan 9 ára bróður, Angelo, sem er yndislegt barn með alls ekkert vesen og engan hávaða. Mér finnst geðveikt að spila fótbolta í playstation með honum eða bara fíflast eitthvað.
Við eigum tveggja ára labrador, Morena, en hún sefur í hundahúsi í garðinum. Rita er húsmóðir sem mér finnst freeekar sweet.. Æðislegt að hafa einhvern sem eldar góðan mat tvisvar á dag (hér er bara borðað kl.2 á daginn og 10 á kvöldin). Hún sækir líka og gerir allt sem maður óskar. Miguel er yfirmaður í ítölsku tölvufyrirtæki með útibú hérna heima í húsinu og það vinna þrír aðrir hérna en við tökum varla eftir því. Svo hann er búinn í vinnunni kl.2.
Angelo & Meli
Þau eiga land í the Sierras sem eru fjöllin hérna nálægt þar sem fólk fer í frí. Þar er víst ótrúlega fallegt, ár og vötn til að synda í. Þau eru að byggja hús sem verður tilbúið í desember (sumar). Lara, systir mín, sem ég bjó hjá áður en ég kom til þeirra, fjölskyldan hennar á hús þarna líka í borg sem heitir Santa Rosa. Það er einskonar ungmennaborg sérstaklega á sumrin og margt í gangi. Þar rétt hjá er þýsk nýlenduborg þar sem er októberfest sem er víst eitthvað rosalegt sem ég og Nati vinkona mín ætlum að fara á. Næstu helgi líklega fer ég með Loru til Santa Rosa og svo keyrum við til Cordóba sem er rétt hjá og er næststærstaborg Argentínu. Ég hef lesið mikið um hana og hlakka til að fara þangað, hún er víst stórkostleg.
Rio Cuarto er lítil á Argentínskum mælikvarða en hún er allavega mun stærri en Reykjavík. . Mér finnst ekkert betra en að labba eða hjóla um göturnar með ipodinn minn og myndavélina seinni part dags þegar sólin er lægra í loftinu. Hér eru engar hæðir heldur er allt slétt. Húsin eru lítil og sæt og öll í hlýlegum litum, brúnum, bleikum, appelsínugulum, gulum, hvítum og svo framvegis. Það graff á veggjunum sem enginn málar yfir. Gangstéttirnar eru allar í mismunandi munstruðum flísum sem ég keppist við að snerta ekki línurnar á. Milli litlu sætu húsanna eru háar blokkir og mjög margar blokkirnar eru bara hálfkláraðar og verða kannski aldrei tilbúnar. Hér er allt sem maður þarfnast. Markaðir um helgar, aðaltorg með gosbrunni, krökkt af verslunum, dansstöðum og börum og fullt af sætum almenningsgörðum. Ég er byrjuð að fara með Maxi að hjóla niðrí bæ og um borgina og fyrst óttaðist ég mikið um líf mitt en þetta venst. Síðan eru allir á mótórhjóli og m.a. svali pabbi minn.
Í Argentínu er mikið af mjög ríku fólki og mikið af mjög fátæku fólki. Fátæka fólkið er venjulega með mjög dökka húð sem mér finnst hræðilegt. Allstaðar í miðbænum eru betlarar á götunum og 4 ára börn labba á milli borðanna fyrir utan veitingastaðina og betla pening. Fátæka fólkið notar svolítið sem heitir carro og eru hestar og hestakerrur til að ferðast á milli. Það fer á milli ruslatunna og leitar að einhverju til að endurnýta og fá pening fyrir, það gerir þetta allan daginn og tekur krakkana með. Dökkir karlmenn eru á götunum oft með gamlan saxafón eða slíkt og spila fyrir klink. Það er í lögum að öll börn eigi að fara í skóla en þessum lögum er ekki fylgt. Stjórnvöld allstaðar eru mjög mjög spillt og það þjónar þeim að hafa mikið af ómenntuðu fátæku fólki. Stjórnvöld gefa þeim pening rétt til að lifa gegn því að fólkið kjósi stjórnvöldin. Það er eins og hér séu tvö samfélög af mismunandi fólki sem reyni að halda sér frá hvort öðru. Mér fannst mjög skrítið þegar ég fór í banka og stóð í röð og dökkur strákur á mínum aldri vék undan þegar röðin kom að honum til að ég færi fyrst. Þetta var eins og í trans, ekki eitthvað um að vera herramaður. Hann glápti svo stórt þegar ég bað hann vinsamlegast um að fara fyrst. Hér er líka mjög stórt fátækra hverfi. Eftir viku eða tvær er ákveðið verkefni í gangi í borginni sem heitir un techo sobre la casa eða þak á húsið. Þá fara borgarbúar í shantybæina og byggja og mála húsin fyrir fátæka fólkið. Ég ætla að fara með Loru og Lisanne tek kannski nokkrar myndir á filmuna – ég vona að það megi.
Það er vetur núna og það er svoooo heitt. Ég er lítið tönuð því ég þoli ekki lengi við berskjölduð í sólinni. Í sumar mun hitinn fara upp í 40-50 gráður. Shit. Því er gott að fjölskyldan mín fer á hverjum degi á sumrin í svona club þar sem er stór sundlaug og stöff. Þar er víst mikið af ungu fólki. Fjölskyldan mín og fjölskylda Lisanne eru bestu vinir og við myndum þá fara þangað saman. Vonandi ferðumst við líka eitthvað saman, það væri sweet. Bróðir minn segir mér að á sumrin er svo heitt að það er ekki hægt að sofa. Því eru allir bara úti alla nóttina að djamma. Til dæmis á jólunum er bara mesta fylleríið. Fjölskyldan mín er að hugsa um að fara hugsanlega til Brasilíu á jólunum. Þá eru bara allir á ströndinni og það er eins konar karnival og víst æðislegt. Crossing fingerS!
loving the llama
Planið var upphaflega að segja einhverskonar ferðasögu en þetta er búið að enda með lýsingum. Þetta er orðið alveg nógu langt svo ég ætla að sleppa því að segja frá öllu sem ég búin að gera, sem er margt. Til dæmis fór ég í dýragarðinn og lék mér við pumur og apa. Ég fór í listaskólann hennar Löru og málaði mynd og indíáni frá Perú kom í enda tímans og gaf mér mynd af sjálfri mér sem hann teiknaði. Á myndinni er ég með hár eins og gull á litinn. Ég er búin að skemmta mér mjög mikið og ég verð að segja að næturlífið hér toppar Reykjavík. Að því leyti að hér dansa allir alltaf. Það sem ég sakna við Reykjavík er að fara á almennilega tónleika. Hér fór ég á eina (á Elvis Presley rock bar) en ég fíla ekki beint progressive argentínskt noise electro rock eða hvað sem þetta var. Ég gæti skrifað heila ritgerð um fyrsta partýið og djammið en ég ætla að láta það vera. En það var allavega með bestu kvöldum lífs míns. Eina sem er óþægilegt er að fá alltaf mikla mikla athygli frá hinu kyninu. En strákarnir í skólanum eru (flestir) almennilegir og vilja bara dansa og það er mjög gaman. Ég hef ekki enn lent í því að dansa svona almennilega við íslenskan strák í Reykjavík. Í dag var skólasamkoma þar sem allir bekkirnir dönsuðu einhvern dans. Einn var með folk-klore í þjóðarbúningum sem voru mjög skrautlegir, tónlistin var mjög sweet. Bekkurinn minn dansaði tangó og stelpurnar voru komnar í þrönga stutta kjóla og mikið málaðar. Þau stóðu sig vel, að sjálfsögðu var ég bara að horfa haha. Flestar stelpurnar hlusta á þessa almennu danstónlist en svo er fólk inn á milli í skólanum sem er með mjög svipaðan tónlistarsmekk og ég og líka stundum áhugasamt um kvikmyndir. Nokkrar stelpur en frekar margir strákar. Sérstaklega indie, 70's rokk og post-rokk. Komst samt að því að einn vinur minn í bekknum mínum hlustar á Earth, Can og Emerson, Lake&Palmer. Skrítið. Hér eru svo verslanir sem selja allskonar tónlistartengda hluti, boli, geisladiska og vínilplötur! Vúhúú og allt svo ódýrt. Hvað ég sakna spilarans míns.
Á götunum er ennþá starað á mig. Þegar ég er ein kalla menn á eftir mér og stoppa bílana sína og biðja mig um að tala við sig. Þetta var alveg hræðilegt fyrst en núna er ég byrjuð að venjast þessu og labba bara hratt burt. Aldrei hélt ég að þetta yrði svona en þetta er satt. Og mér finnst ég ekki einu sinni vera það öðruvísi en krakkarnir segja að ég hafi allt öðruvísi skandinavískt lúkk. En mér finnst langverst eins og þegar ég sit ein á bekk í garðinum og stelpur á mínum aldri hlæja, benda og stara á mig. Fólk kann enga mannasiði.
Ég hlakka til svo margra hluta eins og skiptinemaferða til Iguazu fossa (vatnsmestu fossa í Ameríku) og Salta&Jujuy sem eru indíánaborgir. Ég hlakka til promsins í desember og að fara á prom í öðrum skólum. Ég hlakka til að fara vonandi til Nati í sumar (hún býr hjá pabba sínum í Buenos Aires á sumrin). Ég vona að ég geti ferðast til Chile, Brasilíu og Patagóníu. Mig hlakkar til að sjá villtar mörgæsir, púmur, apa og flamengóa!
Bætt við: Laugardagurinn
Í dag var líklega besti dagurinn minn hérna. Ég fór á stærsta markað sem ég hef séð fyrir utan borgina, kallast RURAL. Þar voru fullt af dýrum til sýnis (vá hvað ég vorkenndi þessum hundum) en aðallega voru þar mörg stór stór stór tjöld með fólki sem var að selja mikið af æðislegu dóti. Þar á meðal traditional Argentínskt dót og fjárfesti ég í alvöru gaucho (Argentínsku kúrekarnir) hatti. Ég keypti líka fallega peysu af konu frá Perú og skartgripi og stöff fyrir vinkonurnar á Íslandi. Það var svo margt fallegt og mér leið eins og milljónamæringi þar sem allt er svo ódýrt. Ég var gjörsamlega í himnaríki þarna og leið svo vel. Það var svo heitt og mikil sól og ís. Síðan fór ég með Horacio á mótórhjólið hans og við keyrðum út fyrir borgina og yfir stóru akrana í síðdegissólinni. Tilfinningin er ólýsanleg vá þetta var sjúkt. Í kvöld er síðan fyrst stór veisla innan fjölskyldunnar og erum við systkinin búin að æfa tónlistaratriði fyrir hana. Síðan ætla í heimahús hjá vini og svo dansa til morguns. Ester sagði mér að það væri leikfélagsparty í kvöld hjá MH liðinu og ég hugsa til ykkar í kvöld.
Jæja þetta er rosalega langt. Ég er búin að breyta stillingunum svo allir geta kommentað, bara velja Name/URL. Vonandi les þetta einhver, allavega þeir sem eru búnir að vera að biðja um þetta. Ég vona að þið kommentið svo ég viti að Ísland er ekki búið að gleyma mér. Ég er svo ánægð að vera hérna, þetta verður frábært ár. Veggurinn minn er fullur af myndum af ykkur og það minnir mig á alla ástina sem ég á hinum megin á jörðina.
Nína.
Snilld Nína, þetta hljómar vel og eins og það sé bara að verða betra. Skemmtu þér áfram vel!
ReplyDeletevá! en frábært ég öfunda þig ólýsanlega mikið hlakka til að heyra meira .. gangi þér vel í þessum vilta dansi og bara hasta la vista sætabrauð
ReplyDeletevá hvað þetta hljómar fáránlega vel!!!
ReplyDeleteég er mega spega öfundsjúk, hafðu það gott ;)
Selma
Ohhhh æðilslegt! Hljómar svo ótrúlega vel allt saman! Gerðu það svo fyrir mig að láta ekki ræna þér! En gangi þér vel og ekkert smá gaman að lesa hvað er að gerast hjá þér, haltu því áfram og haltu líka áfram að skemmta þér og láta alla lúðana í Reykjavík öfunda þig (self included)! Þín Kristín xx
ReplyDeleteÞetta hljómar allt, alltof vel!
ReplyDeleteÉg verð öfundsjúkari með hverri línu sem ég les,
það er eins gott að þú haldir þessu bloggi uppi allan tímann á meðan þú ert úti!
Það er svo gaman að fá að fylgjast með og láta sig dreyma :-)
Knús
Karen María
Elsku Nína. Skemmtilegur pistill!
ReplyDeleteÞegar ég les líður mér eins og ég sé á staðnum. Frábært að þú hefur lent hjá góðu fólki. Við hugsum til þín, faðmlag yfir hafið!
P.
Elsku Nína. Gaman að heyra hvað allt gengur vel. Þú ert opin að þú kannt að taka við öllum þessum nýju og spennandi hlutum og svo ertu gagnrýnin, sem er líka nauðsynlegt. Verður gaman að fylgjast með þér áfram á þessu skemmtilega bloggi. Hjartans kveðjur, Sigga frænka.
ReplyDeleteElsku besta stelpan mín..... frábær pistill, eins og þín er von og vísa. Rifjast upp fyrir mér við lesturinn eigin ævintýr í Alamosa, ekki síst Harley Davison mótorhjólaferðir! Vona að giggið hjá ykkur systkinunum hafi gengið vel.. heyrumst fljótt á skæpinu.. þín mamma
ReplyDeleteTakk stelpur og fjölskylda, ótrúlegt að þið hafið haldist út allt þetta langa blogg. En núna verður það minna og minna að útskýra og ég lofa að hafa næstu blogg minni.
ReplyDeleteMuchos besos
Elsku yndið mitt
ReplyDeleteÉg vona bara að þú sért góð og allir séu góðir við þig, ég hugsa til þín á hverju kvöldi - og bara allan daginn!
Ég vona að þú verðir ánægð hjá nýja fólkinu þín
kær kveðja
amma Nína
Takk amma mín ég hugsa líka mikið til þín. Þú ert mun svalari en núverandi amma mín hérna haha,, hlakka til að heyra í þér!
ReplyDeletenína