Ætla að henda inn einu fyrst ég hafði fyrir því að skrifa ferðasöguna í dagbókina mína í dag.
Á laugardagsnóttina fór ég fyrst í eitt stykki partý og síðan var ferðinni heitið á dularfullan áfangastað að nafni Roca Rosa. Ég vissi ekki hvað ég átti að búast við þegar við komum að stórri girðingu og fórum í gegnum hlið eins og er á lestarstöðvum. En við blasti risastórt hús og stór garður með pálmatrjám og sófum! Gosbrunnar og stór sundlaug! Inni eru margir salir sem spila mismunandi tónlist og barinn er með þeim stærsta sem ég hef séð. Aldurstakmarkið er 18 fyrir stelpur, 20 fyrir stráka haha. Og vá það var gaman að dansa þarna. Næsta dag fór ég í ferðalag upp í fjöllin. Fórum í “club” og ég sofnaði á vinsænginni í sundlauginni. Veðrið var dásamlegt og við fórum að “húsinu” okkar sem er verið að byggja og fengum okkur smá sundsprett í vatninu sem húsið stendur við. Þetta er stærsta vatn sem ég hef séð.
Á mánudaginn fór minn árgangur í aðra borg að heimsækja verksmiðju. Það var áhugavert en ég skildi auðvitað núll. Síðan var afmæli litla bróður míns, Angelo, níu ára! Það var haldið í svona old-fashion leikjasal og var glatt á hjalla og ég fékk köku. Annars er margt búið að vera í gangi, afmæli Lisanne og svo er skólinn að undirbúa Día del Alumno (Nemendadagurinn) sem er á mánudaginn. Allir klæða sig í búninga og halda sýningu og stöff. Við erum zombie-ar og erum búin að vera að æfa thriller dansinn haha. Síðan er eitt slæmt. Bekkjarhljómsveitin (með 3 stelpum, 1 strák) er búin að ákveða að ég eigi að vera píanóleikari og aðalsöngvari í lagi fyrir framan allan skólann! Ég mótmælti lengi vel en eftir að hafa heyrt tilraun eins stráksins að syngja á ensku gafst ég upp. Og lagið er I Used To Love Her – Guns N Roses. Gæti verið verra. Í dag fór ég svo í úthverfin heim til einhverrar konu sem á píanó því ég er ekki búin að spila svo lengi. Annars er verið að reyna að redda kennara og píanói og stöffi, og líka gítarkennara. Þetta píanó var það fyrsta sem ég hef séð síðan ég kom. En þegar ég snerti það kom í ljós að nóturnar voru ekki réttar, ég erfði perfect pitchið í fjölskyldunni svo ég ein heyrði það að allt var of lágt, c hljómar eins og h o.s.frv. Það var geðveikt að spila aftur en þetta var alveg að gera mig brjálaða svo að á endanum fór ég að reyna að spila öll lögin einni nótu ofar haha. Svo fann konan fullt af tango, folkklore, milonga og zambanótum fyrir mig. Hún bókstaflega grét af gleði þegar ég spilaði Tunglskinssónötuna, sagði að enginn hefði spilað á þetta píanó í 10 ár haha. Þarna kemur skýringin. Allavega, þetta er mjög merkilegt ekki satt. Kannski þið tónlistarskólavinir mínir skemmtið ykkur yfir þessu.
Í kvöld er mér boðið í party með bróður mínum en ég nenni engu og ætla að vera heima með mynd. Fara út á morgun. Það er spáð hitabylgju yfir helgina og næstu viku, og ég sem hélt að það gæti ekki orðið heitara! Á morgun er margt í gangi og svo á sunnudaginn ætla ég bara að hanga allan daginn með sophiu&gítarinn hennar, kíkja svo í sund eða eitthvað. Ég hef svo mikinn tíma til að slappa af, yndislegt.
Ég er byrjuð að hjóla endalaust um alla borgina og horfa á fallegu gömlu hlutina. Fólk í almenningsgörðum með eldgamla gettóblastera, ryðguð litrík skilti og hús, endalausa gamla bíla. Allstaðar ALLSTAÐAR flökkuhundar, mig langar alltaf að ættleiða þá:( Fólkið mitt er alltaf að gera grín af mér því mér finnst allt gamalt svo fallegt og almennt bara allt svo öðruvísi og æðislegt. Þau segja að ég hata tækni. Þeim finnst allt nýtt vera svo flott eins og krakkarnir fengu hjartaáfall þegar þau sáu ipodinn minn. Hér eru ekki ipodar bara tónlist í símunum. Í dag hjólaði ég svo út í úthverfin við ána og tók myndir af villtu hestunum sem búa þar. Það eru hestarnir sem eru orðnir of gamlir og eyðilagðir til að bera fátæka fólkið um á kerrum. Hlustaði á alla nýju argentínsku tónlistina sem skólafélagar mínir hafa verið svo góðir að redda mér, elektronik tangó og fleira. Af þessum stað er útsýnið á miðbæinn geðveikt, blokkirnar minna á Manhattan, samt ekki alveg haha. Allstaðar um bæinn sér maður fótbolta. Krakkar á öllum aldri spila í öllum götuhornum, oft bara með eitthvað sem líkist bolta haha. Litlir strákar í treyjum með nafni Maradona eða Messi. Allstaðar er fólk að spila músík, leika með börnunum sínum, drekka mate. Einnig er mikil hjóla og brettamenning og frábær aðstaða til þess. Fór með bróður mínum og vinum hans á einn stærsta brettastaðinn og fékk skrítin augnatillit frá öllu gettófólkinu, það hló svo þegar ég datt :( Svo er ég búin að fara mjög oft með pabba mínum á mótórhjólinu hans, eins og í dag til að sækja myndirnar mínar úr framköllun. Ég ætla að fjárfesta í mótórhjóli í framtíðinni. Langar líka að panta mér betri filmuvél á netinu, filtera&linsur. Kaupa mér gítar (mjög góðir á 20þús). Jæja, Angelo litli bróðir minn er orðinn óþolinmóður, ég var búin að lofa að spila með honum Tony Hawk fram að kvöldmat. Ef þið lásuð þá verðiði að kommenta! Mér finnst ótrúlega gaman að fá þau og sjá að fólkið mitt fylgist með mér. Stulli var svo góður að sækja myndir úr framköllun fyrir mig og pabbi hans extra góður að senda mér þær haha. Þannig að ég ætla að skella inn nokkrum góðum á fésið.
Kveð með laginu sem lýsir því hvernig mér leið í dag
Chau Chau
Sláðu í gegn... Guns N Roses! með hálsbólgu og eyrnabólgu, upp í rúmi...haustið er komið og kvefið með! Sendi sms áðan, virkaði það? Mikið við tölvuna á morgun og þar með skypið... ást og blíða mamma
ReplyDeleteNice Blog Nína :)
ReplyDeleteMikið er gaman að heyra frá þér og að allt gangi vel.
ReplyDeleteÉg hugsa til þín - oft.
Ást.
ooo ég elska bloggin þín!! ég væri sko til í að koma að heimsækja þig þegar við megum ferðast. Skiptumst kannski bara á! En gott að heyra að allt gengur vel..luv ásdís
ReplyDeleteÁsdís ertuaðdjóka mig langar svo að koma til þín í Tucumán, gerum það ok. Líka frábært að allt sé gott hjá þér.
ReplyDeleteTakk fyrir kommentin mín kæru
Gracias por los comentaris mis amors
Gaman að lesa bloggið þitt. Þú hefur greinilega nóg að gera, og ert vakandi fyrir mannlífinu í þessu nýja landi. Það er oft í litlu atriðunum sem er best að "lesa" mannlífið, og þú virðist hafa gott auga fyrir þeim.
ReplyDeleteKeyptu endilega góðan gítar, pabbi borgar!!
Pabbinn
Ég er orðin húkked á blogginu þínu Nína...ótrúlega gaman að lesa :)
ReplyDeleteÞú massar þetta performance, er ekki í neinum vafa!
Kv. Vigga