Monday, December 20, 2010

Vamos a bailar!


Fésbókin mín hristist af skelfingu við myndum af mér í bleikum magabol og krefst útskýringar. Ég er búin að vera að æfa salsa og reggaeton í Habana Mix síðustu mánuði (já, ég, Nína Hjálmarsdóttir, læra að dansa) og það hefur gengið alveg þokkalega vel. Um helgina voru svo tvær sýningar í fullu borgarleikhúsi og ég lenti með eitt atriði á hverju kvöldi. Allan föstudaginn hafði ég legið nær dauða en lífi úr veikindum og var alls ekki svo hress allan laugardaginn á general prufu, hvað þá um kvöldið þegar við bættist tonn af kvíða, magapínu og stressi. Plús það að ég hafði prófað alla háhælaplatínulitaðaskó sem finnast í ættinni minni og vinkonum en hafði aldrei náð að dansa án þess að detta. Og plús það að þegar ég horfi á fötin sem ég átti að vera í langaði mig að æla, og hinar 8 stelpurnar sem eru í salsahópnum mínum líka. Eugenia&Guadalupe úr bekknum mínum byrjuðu fyrir mánuði. En við ákváðum að taka þessu jákvætt, við lítum alveg allt í lagi þegar við dönsum saman og hugsað er um aðstæðurnar sem við vorum í. Kynnirinn minntist svo á að í hópnum væru útlendingar; ein frá Indlandi (wtf?), Ástralíu og Þýskalandi. Við erum frá Belgíu og Íslandi en ok haha. Þannig að þetta kvöld breyttist ég andlega og líkamlega séð í bleika magabolsskinku. Mamí var rosalega stolt þegar hún horfði á mig og sagði að ég væri alveg eins og ljóshærð latino-dansmær. Svo var þetta ógeðslega flott og ógeðslega gaman!!

Á sunnudaginn helmingaðist stressið þegar við Ellen vorum að æfa okkur fyrir reggaetonið sem yrði um kvöldið, fyrir framan spegilinn að reyna að ýta rassinum meira upp og brjóstunum út og hrista mjög ákaft... alls ekki nógu klárar á kóríografíunni. Dressið þetta skiptið var fjólublár magabolur með rifum á bakinu og risastórar, glansandi, mjög skrítnar, gular buxur. En í staðinn fyrir að æfa vel fórum við út á gömlu lestarstöðina og fífluðumst með AFS fólki í nokkra klukkutíma. Það er alltaf svo sorglegt þegar við hittumst núna því Matteo, Ellen og Pete eru að fara bráðum. Jæja, það var svo góð stemming í leikhúsinu um kvöldið, enda fólkið sem við erum með í hóp snilld. Við erum reyndar svoldið mörg en ég var allan tímann í fremstu röðinni, nema að það varð frekar þröngt um tíma og ég og einn strákurinn sem ég var að dansa þennan part með lentum eiginlega svona út af sviðinu haha en skiptir ekki. Kynnirinn góði kynnti Ellen rétt sem þjóðverja en sagði að ég væri yankee (Bandaríkjamaður) sem var pínu særandi en já. Allt í allt var þetta frábær sýning, sjúk atriði og hrein unun að horfa á. Í Argentínu er auðvitað allt annar mælikvarði á dansreynslu almennings, og því er þetta fólk margir hreinir snillingar. Konurnar sjúklega sexí, mennirnir líka og mjög hreyfanlegir, ekkert feimnisdrasl heldur bara let's dance! Allt var í boði; allar tegundir salsa, reggaeton, rumba, chachacha, tangó, milonga, arabe, hip-hop, breakdance, krump, mambo.... svo margt meira. Svo geðveik sýning!



Eftir sýninguna klukkan hálf tvö um nóttina var svo partý á klikkuðum stað við aðaltorgið, allir borðuðu og drukku eins og enginn væri morgundagurinn. Á tímapunkti var ég kölluð að míkrófóninum og skipað að syngja íslenska þjóðsönginn. Ég hefði nú bara hoppað af sviðinu hefði ég ekki verið vel í glasi og ekki munað að þjóðsöngurinn – er ekki léttasta lagið að syngja! En ég gerði þetta og fékk ótrúlegt en satt mjög mörg hrós eftir á. Þannig er það að í argentínu þyki ég vera rosalega góð söngkona því hérna kunna ekki flestir að halda tóni eins og á Íslandi, þannig að ég er alltaf látin syngja allsstaðar og er komin yfir að vera feimin, geri það bara. En þetta var ekki búið! Þau vildu alltaf meira og sama hvað ég neitaði þá var ég klöppuð upp aftur og aftur. En í þau skipti ákvað ég að syngja frekar Ellu og Noruh svo allt í gúddí. Síðan var bara var dansað allar danstegundirnar, boðið upp í salsa/dirty dancing. Það var... ástríðufullt. Fólk söng, talaði og þetta endaði með klikkuðu dance-offi. Staðurinn vildi loka kl.5 en fólk var ekki tilbúið að hætta djamminu á þeim tímapunkti, þannig að nóttin hélt áfram en ég held að meira sé ekki við hæfi á internetinu.

Góð nótt var það! Öruggt er að ég er að læra mikið um heim salsatónlistar og dans, og ætla að halda því áfram (á Íslandi hmm?), og nú svona þegar ég kíki næst til Kúbu. Er búin að vera að hlusta á salsatónlistina sem foreldrar mínir hafa haft fyrir eyrum mér alla mína ævi. En nú er ég alveg að enduruppgötva uppahalds lögin því ég skil textana! Þetta lag sem er um fátæka fiskimanninn kvartandi yfir yfirmanninum, eða maður að syngja um óþolandi ástina. Miðbærinn hérna er allur logandi af anda núna fyrir jólin og ég spóka mig um í stuttpilsi klukkan 10 á kvöldin með ipodinn syngjandi og stelst stundum til að taka nokkur salsaspor. Var að elda um daginn tortillas með græjurnar í gangi á klassík kúbudisknum okkar fjölskyldunnar (ísland) syngjandi: No quiero ver te más! Pero me voy a ver! (Ég vil ekki sjá þig meira, en nú fer ég til þín!) og Angelo litli kom til mín og knúsaði mig og sagði að ég ætti aldrei að lita á mér hárið því ég væri langsætust svona haha.

Nú ætla ég bara heim til hennar Naiata vinkonu minnar í sundlaugina og vera þunn, og svo á fimmtudaginn er það Santiago del Estero. Verð án internets þannig að einhver þarf að hafa samskipti við mig fyrir jólin er tíminn núna.
Fríða átti afmæli í gær. Til hamingju með það mín kæra. Hefði verið frábært að vera hjá þér en það var því miður landfræðilega ómögulegt, en vona að þú hafir fengið sendinguna mína. Við eigum mörg afmæli eftir saman.
Adios á todos!

3 comments:

  1. mín elsku besta... eins og ávallt, yndislega skemmtileg frásögn, vildi ég hefði verið með þér, sem auka mamí, að upplifa þetta allt saman...stolt af þér að demba þér bara í þetta allt þrátt fyrir veikindin.. sem samkvæmt hljóman á skæpinu voru hreint ekki lítil. Er hér heima í Lækjarhjallanum, á miðnætti, baka og hlusta á Mótettukórinn syngja Nóttin var sú ágæt ein... ætti kannski að ná mér í góða salsa tónlist...ha, ha....hugsa til þín elskan mín... og sakna... en... eins og þú manst, þá er gott að sakna....þín mammma

    ReplyDelete
  2. Svo frábært, svo frábært!
    Get ekki lýst hversu mikið ég hefði viljað sjá þessa sýningu.
    Hlakka til að sjá danssporin næsta sumar.
    Mig langar endilega að skipuleggja Skype-deit fyrir fimmtudag, langt síðan síðast. Þá geturðu líka séð litla krúttið hann systurson minn!
    Lovjú, Halla.

    ReplyDelete
  3. Haha, snilldarblogg! Get vel ímyndad mér tig uppá svidi syngjandi fyrir framan trodfullan skemmtistad... jaja. En hvad í apanum aetlaru ad gera í Santiago de Estero. Fólk segir ad tad sé ein ljótasta borg í Argentínu. Láttu mig vita ef tú rennir í gegnum Catamarca, ég get sýnt tér allt tad heitasta hér!

    ReplyDelete