Wednesday, October 13, 2010

Mate



Mér finnst að núna ætti ég að hætta að blaðra um sjálfa mig og koma með smá fróðleik. Í samskiptum mínum við Ísland hef ég fengið spurningar um þetta “mate” sem ég er alltaf að tala um. Lýsandi fyrir vini mína er að þau halda öll að þetta sé eitthvað argentínskt jurtaáfengi sem ég er að drekka allan daginn. Ég nenni ekki að segja bara alltaf uuu þetta er svona sérstakt argentínskt te þannig að hér kemur almennileg útskýring, skyldulesning.

Ekkert særir stolt Argentínumannana meira en þegar minnst er á tengsl þjóðarhefða þeirra við hefðir úr öðrum heimshlutum. Ég hef hlustað á ástríðufullar samræður um hversu erfitt er að finna fyrir þjóðarsamkennd hjá svona nýrri þjóð. Allir eiga afa og ömmur sem koma frá Spáni, Ítalíu, Arabalöndum, Þýskalandi, Englandi eða einhversstaðar frá og svo margt sem er hluti af menningunni var ættleitt annarsstaðar frá. Með Evrópumönnunum hurfu Indíánarnir og Argentínsku Gauchoarnir (kúrekarnir). Í norðrinu finnast þó ennþá indíánaflokkar með sín tungumál og gauchoar finnast en þó öðruvísi en þeir voru. En margt er ættleitt frá Evrópu. Jafnvel Fernetinn (langvinsælasta sterka áfengið í Cordóba héraðinu mínu) er frá Ítalíu. Sumt er þó Argentínskt. Tangódansinn varð til í Argentínu í mixi innflytjenda í úthverfum Buenos Aires. Folklore tónlistin og dansinn er sérstakt fyrir Argentínu eins og mörg lönd eiga sína útgáfu af folklore. Svo er það mate-ið. Mate er mjög mikilvægt menningarlega og sögulega séð, þjóðardrykkurinn sem gauchoarnir drukku á sléttunum þegar þeir lágu í náttúrunni og fylgdust með dýrunum sínum.
Quotað í Lonely Planet (uppahalds bókin mín): Nothing captures the essence of argentinidad as well as the preparation and consumption of mate, perhaps the only cultural practice that truly transcends the barriers of ethnicity, class and occupation in Argentina. It's a ritual, shared among family, friends and coworkers. In many ways, sharing is the whole point.

þið vitið auðvitað að Che er frá Argentínu?

Mate er skál (oft í laginu eins og lítil kókoshneta með gati) sem kallast Gourd. Gourds geta verið allt frá útskornu tréi til gullskreyttra fjölskyldudýrgripa. Til að neyta innihaldsins er notað sérstakt rör að nafni bombilla (sagt bombísja) með filter í botninum til að innihaldið fari ekki í munninn, bara safinn. Það getur verið úr ódýru járni allt að silfri eða gulli og getur haft allskonar lögun og skreytingar. Nánast alltaf þegar fólk hittist er boðið upp á mate. “Að fara í garðinn og drekka mate” er eins og afsökun fyrir því að hittast og chilla í sólinni.
Í gamla daga voru upper-class fjölskyldur oft með sérstakan þræl eða þjón sem sá hreinlega bara um að undirbúa og þjóna til mate. En núna er einn cebador (server, veit ekki hvernig það er á íslensku) sem fyllir næstum allt gourdið með yerba (sagt sjerba). Yerba mate eru þurrkuð skorin lauf af jurtinni llex paraguyensis. Síðan er hitað en ekki soðið vatn í pava og smá hellt ofan í gourdið. En cebadorinn verður að hella vatninu mjög hægt nálægt bombillunni og svo láta mateið ganga klukkuhringinn. Hver klárar vatnið og lætur svo cebadorinn fá mateið og hann refyllir og lætur næstu manneskju fá. Góður cebador lætur mateið ganga án þess að skipta á yerba í einhvern tíma. Maður skal ekki halda gourdinu hjá sér of lengi. Það er nóg að segja einu sinni gracias ef maður vill ekki meira. Landfræðilegur fjölbreytileiki fylgir mateinu. Frá Pampassvæðinu (aðeins fyrir neðan héraðið mitt) og suðurútfrá er drukkið mate amargo (án sykurs) en hérna og norðar er algengt að drekka það dulce (sætt). Paraguya-ar drekka mate ískalt sem tereré. Að meðaltali drekkur hver Argentínumaður u.þ.b. 5Kg af mate á ári sem er mun meira en almenn kaffineysla á heimsvísu. Þegar þú kaupir þér mate verðuru að “lækna” það áður með því að setja heitt vatn og yerba og láta það standa í 24 tíma. Síðan geturu alltaf farið með mate og látið fylla á hitabrúsann þinn. Bara þegar fólk á veitingahúsum sjá hitabrúsann þinn þá vita þau hvað þig vantar. Bensínstöðvar eru alltaf með risatanka með nákvæmlega rétt hituðu vatni fyrir drekkandi fólk á veginum. Fyrir mér er mate líklega einn besti drykkur sem ég hef prófað. Mér líður alltaf vel eftirá og hjálpar líkamanum mínum að venjast nýrri rútínu fullri af hreyfingu. Raunverulegt jurta-tebragð, róandi, gott fyrir líkamann og svo æðislegt hvernig fólk sameinast í ákveðni athöfn, í augnablikinu og deilir. Þegar ég sný aftur norður er fjölskyldan mín hérna búin að lofa að senda mánaðarlegar byrgðir af mate og líka öðrum hlutum sem ég veit ekki hvort ég get verið án eftir að hafa komið hingað. Var þetta ekki skemmtilegt? Ef þú last þetta (gæti alveg vel verið að einhver hafi nennt að lesa þetta), þá verðuru að kommenta. Besos chau!
Messi með mate

Vinkona mín Valentina í almenningsgarði
Los gauchos

6 comments:

  1. Það er galdur að skrifa þannig að litlu atriðin verði áhugaverð. Þér tekst það vel, allt verður ljóslifandi.

    pabbi.

    p.s.: Langar mikið í "mateið" eftir að lesa lýsingar þínar.

    ReplyDelete
  2. mamma and her Danish friend Kamma here at home at the kitchen table ...(last very good friend from Keðja , but leaving in the morning and sleeping in your room)..... Thanks a lot for sharing this knowledge with us, I translated it to Kamma and we feel we certainly about the drink of MATE then before and we really want to taste it....knus og pus, keðja gekk svaka vel... threytt en sael
    mamma og kamma

    ReplyDelete
  3. Vá ég bý líka í Argentínu og ég vissi alveg ekkert af tessu, frábaert blogg!

    bso
    Magnús

    ReplyDelete
  4. Ásdís GuttormsdóttirOctober 15, 2010 at 4:17 PM

    Ekki vissi ég þetta! gaman að lesa eins og öll bloggin þín..
    við verðum að búa til svona klúbb eftir að við komum heim og drekka mate, borða empanadas, milanesas og dulce de leche..
    og þú spurðir mig líka með "6 week camp" en trúnaðarkonan mín sagði mér bara frá því, veit svo sem afskaplega lítið um það nema að það verði bráðum. Þú getur bara spurt einhvern þarna hjá AFS í Rio og þau vita það pottþétt..
    besos

    ReplyDelete
  5. Alltaf gaman ad lesa boggid thitt!
    Og èg verd ad vidurkenna ad ég vissi heldur ekki neitt af thessu.
    Ég styd allavega thessa hugmynd um mate klubb heima á íslandi
    besos

    ReplyDelete
  6. Mig langar mjög að smakka þennan drykk. Hljómar vel. En á meðan drekk ég bara Sómalíukaffi, það dugar í morgunsárið í Hamrahlíðinni.

    Hrefna, Sunna, Fríða, Fransiska og Eydís sitja hér með mér í Noðurkjallara í eyðu og biðja að heilsa. Sólrún var að labba inn, hún biður líka að heilsa.

    Ástarkveðjur,

    Halla.

    ReplyDelete