Ég er að flytja til Argentínu sem skiptinemi á vegum AFS. Blogg þetta er ætlað fyrir fjölskylduna og forvitna vini og stefni ég að því að blogga nokkuð reglulega en ekki of mikið.Ég flýg í fyrramálið með hinum Argentínuförunum til New York og verð þar yfir daginn og tek síðan næturflug til Buenos Aires. Þar tekur við nokkra daga námskeið með skiptinemum allsstaðar að úr heiminum.
Næst kemst ég (vonandi) til Cordoba fylkis og til borgarinnar minnar, Ríó Cuarto sem er staðsett í miðri Argentínu. Ágætis fjarlægð er til Buenos Aires, Santiago, Rio de Janeiro, Andesfjallanna o.s.frv.
Stelpan sem ég átti að búa hjá lenti í einhverjum vandræðum svo að hún verður bráðabirgðafjölskyldan mín þar til að önnur finnst á sama stað. Ég mun ganga í einkaskóla sem leggur áherslu á hugvísindi, tónlist og tangó.Krakkarnir í bekknum mínum eru þegar búin að hafa samband við mig í gegnum fésbókina og er ég víst boðin í party þegar ég kem.
Ég er mjög spennt að komast út í heim en um leið aðeins stressuð yfir fyrstu vikunum og mánuðunum þar sem ég verð eins og lítið barn, kann ekkert á samfélagið né að tjá mig. Held nú samt að tilhlökkunin sé yfirsterkari. Suður Ameríka.
Sjáumst eftir ár!
Hasta Luego!
rio cuarto

Elsku besta Nína mín, ég vona og veit að dvölin í Argentínu verður frábær lífsreynsla og að þú munt kynnast nýjum menningarheim, nýju fólki og straumum. Ég óska þér alls hins besta á för þinni um Suður-Ameríku og hlakka strax til að hitta þig aftur 20. júlí 2011. Mér þykir óendanlega vænt um þig og mun fylgjast vel með þér í gegnum veraldarvefinn. Vertu dugleg að blogga svo við hin getum lesið spennandi sögur úr fjarlægu landi á köldum vetrarkvöldum. Ég krefst einnig reglulegra funda á Skype. Ég mun sakna þín.
ReplyDeleteÞín, Halla.
Elsku Nína,
ReplyDeleteVið fjölskyldan þín hérna í Mývatnsveit viljum bara óska þér góðs gengis og segja þér að fyrst að þú lifðir af heilt sumar hérna fyrir norðan lifir þú af ár þarna í Argentínu.
En pabbi er hins vegar ekki viss um að Argentínu búar lifi þetta af...
Kv. Hildur Ásta og sveitó-co.
Við mamma, pabbi og Snorri fylgdu Nínu rétt í þessu út á flugvöll og kysstumst og tárumst á víxl. Hún heldur nú á vit ævintýranna og við hlökkum mikið til að fylgjast þeim um leið og við finnum að við munum sakna hennar óendanlega mikið. Argentínubúar fá flottan nýbúa í eitt ár!
ReplyDeleteNína.
ReplyDeleteMikið langar mig að heyra hvernig þú ert að njóta þín í Argentínu svona fyrstu dagana.
Blogg, blogg, blogg!